Handbolti

Guðjón Valur orðaður við Barcelona

Spænska dagblaðið El Mundo Deportivo heldur því fram að það sé aðeins formstriði að félagið gangi frá samningum við landsliðsfyrirliðann Guðjón Val Sigurðsson fyrir næsta tímabil.

Guðjón Valur á að fylla í skarð Juanin Garcia en samningur hans við Barcelona rennur út í lok tímabilsins. Garcia hefur verið á mála hjá liðinu síðan 2005.

Þá er óvíst hvort að Slóvakinn Martin Stranovksy verði áfram í herbúðum Börsunga en hann hefur ekki þótt standa undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans þegar hann kom fyrir tveimur árum síðan.

Aitor Arino yrði áfram á mála hjá Barcelona og myndi samkvæmt frétt El Mundo Deportivo deila stöðu vinstri hornamanns með Guðjóni Val.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×