Handbolti

Aron með tilboð frá Kiel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron fagnar marki í leik með Kiel.
Aron fagnar marki í leik með Kiel. Vísir/Getty
Þýsku meistararnir í Kiel hafa gert Aroni Pálmarssyni nýtt samningstilboð en núverandi samningur hans rennur út í lok næsta tímabils.

„Ég get staðfest að Kiel hefur boðið mér nýjan samning en ég hef líka fengið fyrirspurnir frá fleiri félögum. Það liggur samningur á borðinu frá Kiel og það er eini samningurinn sem ég er búinn að líta yfir,“ sagði Aron í samtali við Morgunblaðið í dag.

Hann segist þó ætla fyrst og fremst að einbeita sér að handboltanum og að halda sér heilum en Aron hefur verið að glíma við meiðsli í hné að undanförnu.

Óvíst er hvort að Aron geti spilað með Kiel gegn danska liðinu Kolding í Meistaradeild Evrópu á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×