Handbolti

Hvað voru strákarnir okkar að gera í Evrópuboltanum í kvöld?

Ásgeir Örn og félagar.
Ásgeir Örn og félagar. vísir/getty
Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði tvö mörk fyrir PSG í franska handboltanum í kvöld. Lið hans vann þá fínan sigur, 34-29, á US Ivry.

Róbert Gunnarsson var ekki í leikmannahópi PSG í kvöld en liðið er á toppi deildarinnar með tveggja stiga forskot á Dunkerque.

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði eitt mark fyrir GOG sem tapaði, 23-29, fyrir Skjern í dönsku úrvalsdeildinni. GOG er í fimmta sæti deildarinnar en Skjern á toppnum.

Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði svo þrjú mörk fyrir sænska liðið Kristianstad sem lagði Ystad, 26-21. Kristianstad er með fimm stiga forskot á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×