Handbolti

Montpellier deildarbikarmeistari í Frakklandi

Arnór Atlason
Arnór Atlason Vísir/Getty
Montpellier sigraði Saint Raphael örugglega í úrslitum franska deildarbikarsins í dag. Arnór Atlason náði sér ekki á strik í dag en hann skoraði eitt mark úr þremur skotum.

Eftir að hafa sigrað félaga sína úr landsliðinu, Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson sem leika með Paris Saint German í vítakeppni í undanúrslitum í gær var mikil spenna fyrir úrslitaleikinn í dag.

Aðeins þrjú stig skilja liðin að í frönsku úrvalsdeildinni en það var hinsvegar aldrei spurning hver úrslitin yrðu í dag. Montpellier með William Accambray fremstan í flokki einfaldlega keyrði yfir Saint Raphael og lauk leiknum með 13 marka sigri Montpellier, 34-21.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×