Handbolti

Ólafur með tíu mörk í sigurleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafur Guðmundsson.
Ólafur Guðmundsson. Vísir/Daníel
Ólafur Guðmundsson var allt í öllu þegar Kristianstad vann eins marks sigur á Skövde, 30-29, í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Ólafur skoraði tíu mörk og var langmarkahæstur í sínu liði en eftir þennan sigur er Kristianstad með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar.

Ólafur var mjög öflugur á lykilkafla í leiknum þegar Kristianstad breytti stöðunni úr 20-21 í 29-25 en hann skoraði þá þrjú marka liðsins.

Ólafur fékk líka brottrekstur á lokasekúndum leiksins þegar leikmenn Skövde gerðu sig líklega til að jafna leikinn.

Ólafur hefur nú skorað 126 mörk í 21 leikjum á tímabilinu og er í hópi markahæstu leikmanna deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×