Handbolti

Enn vinnur Kolding undir stjórn Arons

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Aron Kristjánsson stýrði Kolding til sigurs í þriðja sinn í jafn mörgum leikjum er liðið vann Skanderborg í dönsku úrvalsdieldinni í kvöld, 30-26.

Aron tók við Kolding fyrir rúmri viku síðan og hefur byrjað vel með félagið. Það hefur unnið tvo leiki í dönsku deildinni og einn í Meistaradeildinni undir stjórn íslenska landsliðsþjálfarans.

Kolding hefndi í kvöld fyrir tap í leik þessara sömu liða í nóvember en staðan í hálfleik í kvöld var 14-11. Liðið er í öðru sæti deildarinnar með 39 stig, einu á eftir Skjern.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×