Handbolti

Óvæntur sigur hjá Rúnari og félögum

Rúnar Kárason.
Rúnar Kárason.
Rúnar Kárason átti flottan leik fyrir lið sitt, Hannover-Burgdorf, er liðið gerði sér lítið fyrir og skellti Flensburg, 27-26.

Rúnar skoraði fjögur mörk fyrir Hannover sem kom til baka eftir að hafa verið undir í fyrri hálfleik.

Hannover er í sjöunda sæti deildarinnar en meistaravonir Flensburg eru svo gott sem úr sögunni eftir þennan leik.

Ólafur Gústafsson lék ekki með Flensburg í dag en hann er á leið í danska boltann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×