Handbolti

Barcelona pakkaði PSG saman

Leikmenn PSG voru í vandræðum með Karabatic.
Leikmenn PSG voru í vandræðum með Karabatic. vísir/getty
Lið þeirra Ásgeirs Arnars Hallgrímssonar og Róberts Gunnarssonar, PSG, fékk mikinn skell, 38-28, er það sótti Barcelona heim í Meistaradeildinni í dag.

Heimamenn léku við hvurn sinn fingur á heimavelli og PSG sá aldrei til sólar. Arpad Sterbik lokaði markinu og Barcelona leiddi með tíu mörkum í hálfleik, 19-9.

Þar með var dagskránni í raun lokið. PSG reyndi að sprikla í síðari hálfleik en hafði ekki erindi sem erfiði.

Róbert lék nokkuð fyrir PSG í dag en Ásgeir Örn fékk ekkert að koma við sögu.

Barcelona er þar með búið að vinna C-riðil keppninnar en PSG mun einnig fara áfram í sextán liða úrslit. Liðið er í öðru sæti riðilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×