Handbolti

Tveir íslenskir þjálfarar með lið í undanúrslitum bikarsins

Dagur Sigurðsson.
Dagur Sigurðsson. vísir/bongarts
Það liggur nú fyrir hvaða lið taka þátt í undanúrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar í handknattleik í Hamburg.

Rhein-Neckar Löwen var fyrsta liðið til að tryggja sig inn í úrslitahelgina og nú hafa Flensburg, Füchse Berlin og Melsungen gert slíkt hið sama.

Lið Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin, lenti í hörkurimmu gegn Lemgo en hafði að lokum sigur, 26-23.

Flensburg skellti Wetzlar, 19-25, þar sem Anders Eggert skoraði sjö mörk fyrir Flensburg. Melsungen vann svo þriggja marka sigur, 30-27, á Göppingen.

Dregið verður í undanúrslitin á föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×