Handbolti

Kári og félagar fengu skell | Lið Arons á toppnum

Kári Kristján.
Kári Kristján. vísir/vilhelm
Lið Arons Kristjánssonar, Kolding, heldur toppsæti dönsku úrvaldsdeildarinnar þar sem Skjern missteig sig óvænt á heimavelli gegn Mors-Thy.

Mors-Thy vann fimm marka sigur, 24-29. Liðið á ekki möguleika á því að komast í úrslitakeppnina og sigurinn því afar óvæntur.

Kári Kristján Kristjánsson og félagar í Bjerringbro-Silkeborg steinlágu, 33-23, gegn Skanderborg. Mikilvægur sigur hjá Skanderborg sem á enn möguleika á því að komast í úrslitakeppnina.

Kári Kristján komst ekki á blað en hann spilar afar lítið þessa dagana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×