Handbolti

Löwen í undanúrslit eftir öruggan sigur

Stefán Rafn Sigurmannsson.
Stefán Rafn Sigurmannsson. vísir/bongarts
Lið Guðmundar Guðmundssonar, Rhein-Neckar Löwen, varð í kvöld fyrsta liðið til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar.

Löwen vann þá stórsigur, 40-27, á Bad Schwartau. Yfirburðir Löwen miklir eins og tölurnar gefa til kynna.

Stefán Rafn Sigurmannsson átti fínan leik fyrir Löwen og skoraði fimm mörk. Alexander Petersson skoraði eitt. Andy Schmid var markahæstur með níu mörk.

Hinir leikirnir í átta liða úrslitunum eru nú í gangi og það skýrist síðar í kvöld hvaða lið taka þátt í Final Four helginni í Hamburg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×