Handbolti

Þórey frábær í sigurleik

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Þórey í leik með íslenska landsliðinu
Þórey í leik með íslenska landsliðinu Vísir/Stefán
Þórey Rósa Stefánsdóttir átti frábæran leik fyrir Vipers Kristiansand í 9 marka sigri á Fredrikstad í norska handboltanum í dag.

Þórey fór fyrir liði sínu í markaskorun og skoraði 10 mörk í leiknum í 34-25 sigri. Vipers var 14-15 undir í hálfleik en náði aldeilis að snúa taflinu við í seinni hálfleik.

Hildigunnur Einarsdóttir og félagar í Tertnes unnu góðan sigur á Levanger á heimavelli. Hildigunnur skoraði tvö mörk í leiknum en Tertnes náði tólf marka forskoti fyrir hálfleik. Tertnes er í öðru sæti norsku deildarinnar, átta stigum á eftir toppliði Larvik.

Brynja Magnúsdóttir gat ekki komið í veg fyrir 25-30 tap Flint gegn Stabæk. Brynja setti tvö mörk í leiknum en Þorgerður Anna Atladóttir var ekki í leikmannahóp Flint. Flint situr í neðsta sæti deildarinnar eftir sautján leiki með aðeins tvö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×