Handbolti

Öruggt hjá toppliði Kiel

Guðjón Valur Sigurðsson
Guðjón Valur Sigurðsson Vísir/Getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar unnu ellefu marka sigur á HSG Wetzlar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Guðjón Valur Sigurðsson átti fínan leik í liði Kiel og skoraði fjögur mörk.

Wetzlar sem er um miðja deild náði forskotinu snemma leiks og hélt í við þýsku meistarana fyrstu tuttugu mínútur leiksins. Þá settu hinsvegar gestirnir frá Kiel í gírinn og náðu fimm marka forskoti fyrir lok fyrri hálfleiks. Í seinni hálfleik voru úrslitin aldrei í hættu og juku leikmenn Kiel sífellt forystu sína.

Leiknum lauk með öruggum 35-24 sigri Kiel sem situr á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×