Handbolti

Eins marks sigur hjá Snorra og félögum í Íslendingaslag

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson
Snorri Steinn Guðjónsson Vísir/Vilhelm
Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi íslenska landsliðsins, skoraði fimm mörk úr sex skotum í útisigri GOG gegn Mors-Thy, 27-26, í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Leikurinn var æsispennandi en staðan var jöfn í hálfleik, 14-14. Gestirnir höfðu þó betur á endanum og lyftu sér upp í fimmta sæti deildarinnar með 29 stig.

Guðmundur Árni Ólafsson var með 100 prósent nýtingu í liði Mors-Thy en hann skoraði fimm mörk úr fimm skotum. Hans menn eru í 10. sæti deildarinnar af 14 liðum með 14 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×