Handbolti

Kári Kristján hafði betur í Íslendingaslag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kári Kristján Kristjánsson í leik með íslenska landsliðinu.
Kári Kristján Kristjánsson í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/AFP
Bjerringbro/Silkeborg vann nokkuð öruggan sigur á Nordsjælland, 27-21, í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Staðan í hálfleik var 15-11, heimamönnum í vil, en Kári Kristján Kristjánsson skoraði eitt marka Bjerringbro/Silkeborg.

Atli Ævar Ingólfsson og Anton Rúnarsson skoruðu eitt mark hvor fyrir Nordsjælland en Anton skoraði sitt mark af vítalínunni. Hann tók þar að auki tvö skot í leiknum.

Bjerringbro/Silkeborg er í fimmta sæti deildarinnar með 29 stig en Nordsjælland í næst neðsta sætinu með sjö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×