Handbolti

Flensburg skellti lærisveinum Dags Sigurðssonar

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
vísir/getty
Flensburg vann öruggan 31-20 sigur á Füchse Berlin í þýska handboltanum í dag. Ólafur Gústafsson skoraði ekki fyrir Flensburg.

Refir Dags Sigurðssonar voru inni í leiknum fram að hálfleik en Flensburg var þremur mörkum yfir í hálfleik 15-12.

Heimamenn í Füchse sáu aldrei til sólar í seinni hálfleik og Flensburg vann öruggan sigur.

Michael Knudsen og Jim Gottfridsson skoruðu sjö mörk hvor fyrir Flensburg og Iker Romero 6 fyrir Füchse.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×