Handbolti

Tíu íslensk mörk hjá Ljónunum í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alexander Petersson.
Alexander Petersson. Vísir/Bongarts
Alexander Petersson og Stefán Rafn Sigurmannsson skoruðu tíu mörk saman þegar Rhein-Neckar Löwen vann 17 marka heimasigur á Hannover-Burgdorf í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 36-19.

Alexander Petersson skoraði sex mörk og Stefán Rafn var með fjögur mörk. Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Ljónanna, gat setið rólegur lengstum í dag enda sigurinn mjög öruggur. Rúnar Kárason skoraði tvö mörk fyrir lið Hannover-Burgdorf.

Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk fyrir Eisenach í 21-24 tapi á móti. Hannes Jón Jónsson er enn frá vegna veikinda en Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar liðið.

Ernir Hrafn Arnarson skoraði 3 mörk fyrir Emsdetten sem tapaði 27-32 á heimavelli á móti Göppingen. Oddur Gretarsson komst ekki á blað og Ólafur Bjarki Ragnarsson leikur ekkert meira á tímabilinu vegna meiðsla.  

Arnór Þór Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir Bergischer HC 06 sem tapaði 20-24 á heimavelli á móti GWD Minden. Björgvin Páll Gústavsson var í marki Bergischer.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×