Körfubolti

Einar Árni fer ekki frá Njarðvík

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur.
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur. Vísir/Getty
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur í Dominos-deild karla í körfubolta, er á sínu síðasta tímabili með liðið en hann er ekki á leiðinni úr Njarðvík þrátt fyrir að hætta með meistaraflokkinn. Á heimasíðu Njarðvíkinga kemur fram að Njarðvíkingar ætla að halda sínum manni.

Einar Árni hefur verið ráðinn yfirþjálfari yngri flokka félagsins til næstu fimm ára en þetta er annar fimm ára samningur hans í röð. Einar Árni samdi við fimm ára árið 2009 þegar hann snéri heim til Njarðvíkur eftir tveggja ára dvöl hjá Blikum.

„Mér líður ofboðslega vel í Njarðvík og staðreyndin er sú að þegar ég kom til baka 2009 þá var það hugsað á þeim nótum að einbeita sér að yngri flokkunum.  Það ferli tók óvænta beygju í janúar 2011 þegar við Friðrik Pétur tókum við meistaraflokki karla, og ég hef verið með liðið núna í þrjú og hálft ár af þessum fimm árum sem ég hef verið yfirþjálfari.  Með þessu skrefi gefst einfaldlega meiri tími til að sinna mikilvægum verkefnum í barna- og unglingastarfinu enda meistaraflokksþjálfun mjög tímafrek samhliða.  Unglingaráð sýndi bæði mér og stjórn KKD UMFN mikinn skilning þegar ég tók aftur við meistaraflokknum og það traust kunni ég vel að meta, og ég hlakka til að halda áfram að vinna með öflugu fólki í Unglingaráði sem og góðum hópi þjálfara og foreldra í starfinu," sagði Einar Árni í fréttinni á heimasíðu Njarðvíkur en hana má finna alla hér.

Einar Árni segir þar hafa fengið fyrirspurnir frá öðrum félögum en að hann hafi fyrst viljað tala við Njarðvíkinga. „Ég hef verið að þjálfa yngri flokka í UMFN svo til allan minn feril og þar sem ég kann rosalega vel við mig í kennslu við Njarðvíkurskóla og bý hér með minni fjölskyldu þá mælir ansi margt með því að halda áfram að vinna í grasrótinni hjá uppeldisfélaginu sem manni þykir mjög vænt um," sagði Einar Árni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×