Handbolti

Enn eitt tapið hjá Eisenach

Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson.
Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson.
Lærisveinar Aðalsteins Reynis Eyjólfssonar í Eisenach virðast vera búnir að sætta sig við fall úr þýsku úrvalsdeildinni. Liðið tapaði enn einum leiknum í kvöld.

Að þessu sinni tapaði Eisenach gegn Melsungen, 29-23. Melsungen alltaf skrefi og jafnvel skrefum á undan.

Bjarki Már Elísson skoraði þrjú mörk fyrir Eisenach sem er í næstneðsta sæti deildarinnar og sex stigum frá öruggu sæti í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×