Körfubolti

Jón Ólafur: Verið meira í jóga en körfubolta í vetur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nonni Mæju hefur leikið sinn síðasta leik með Snæfelli.
Nonni Mæju hefur leikið sinn síðasta leik með Snæfelli. Vísir/Daníel
„Ég var búinn að ákveða mig fyrir þetta tímabil,“ segir Snæfellingurinn Jón Ólafur Jónsson - betur þekktur sem Nonni Mæju.

Jón Ólafur spilaði sinn síðasta leik með Snæfelli á fimmtudagskvöldið eftir fimmtán ára feril í meistaraflokki. Hann verður 33 ára í sumar en segir að meiðsli hafi vegið þungt í hans ákvörðun.

„Staðan á mér er ekki frábær - bæði í bakinu og í hásininni. Ég er búinn að vera slæmur í vetur og því fór þetta svona,“ segir Jón Ólafur sem hefur einnig spilað með ÍA, Stjörnunni og KR á ferlinum.

„Ég fékk brjósklos í baki á sínum tíma en ég held að meiðslin nú séu frekar álagstengd. Ég hef verið í mikið í jóga í vetur og það hefur hjálpað mikið - ætli ég hafi ekki verið meira í jóga en körfuboltanum og það hefur reynst mér vel.“

Snæfell endaði í áttunda sæti deildarinnar í vetur og var svo „sópað“ úr 8-liða úrslitunum af deildarmeisturum KR í úrslitakeppnini. Jón Ólafur segist sáttur við að hætta nú en neitar ekki að hann hefði viljað hafa tímabilið betra.

„Við vorum með flottan hóp á blaði en náðum ekki að hámarka þá hæfileika sem bjó í liðinu. Það var svolítið erfitt að kveðja upp á það að gera,“ segir hann.

Jón Ólafur ætlar nú að flytja til Reykjavíkur þar sem hann mun halda áfram með sitt háskólanám í haust. Hann á alveg eins von á að fá símtal frá Reykjavíkurliðunum en reiknar ekki með því að láta freistast.

„Nei, ég hugsa ekki. Það eru litlar líkur á því. Ég læt duga að mæta á leiki og sitja í stúkunni.“

Hann á von á því að KR-ingar muni fara langt í úrslitakeppninni. „Þeir líta mjög vel út. KR er með samstillt lið sem spilar mjög vel saman, bæði í vörn og sókn. Það kæmi því ekki á óvart ef þeir færu alla leið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×