Handbolti

Dýrt tap hjá PSG

Róbert í leik með PSG.
Róbert í leik með PSG. vísir/afp
Íslendingaliðið PSG missti af tækifærinu til þess að komast á topp frönsku úrvalsdeildarinnar er það tapaði, 25-27, á heimavelli í toppslagnum gegn Dunkerque.

Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir PSG í kvöld en Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað. Mikkel Hansen skoraði átta mörk fyrir PSG en það dugði ekki til.

PSG er nú þremur stigum á eftir toppliði Dunkerque.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×