Handbolti

Sex mörk frá Ólafi í sigurleik

Ólafur á EM í janúar.
Ólafur á EM í janúar. vísir/daníel
Ólafur Andrés Guðmundsson og félagar í IFK Kristianstad komust í kvöld upp að hlið Guif á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar.

Liðið vann þá sex marka sigur, 31-25, á Sävehof. Ólafur Andrés fór mikinn sem fyrr og skoraði sex mörk fyrir sitt lið.

Bæði Kristianstad og Guif eru með 47 stig á toppi deildarinnar þegar aðeins ein umferð er eftir af deildarkeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×