Handbolti

Sex íslensk mörk í sigri Kiel

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk í sigri Kiel.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk í sigri Kiel. Vísir/Getty
Þýska liðið Kiel vann tólf marka sigur, 40-28, á úkraínska liðinu HC Motor Zaporozhye í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Kiel vann fyrri leikinn í Úkraínu 31-28 og viðureignina samanlagt 71-56.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk fyrir Kiel og Aron Pálmarsson eitt. Filip Jicha var markahæstur í liði Þjóðverjanna með sex mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×