Handbolti

Kiel dróst gegn Veszprem

Alfreð með Meistaradeildarbikarinn sem hann þekkir vel.
Alfreð með Meistaradeildarbikarinn sem hann þekkir vel. vísir/getty
Í morgun var dregið í undanúrslit í Meistaradeildinni í handbolta. Þýsk lið gætu mæst í úrslitaleiknum.

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel mæta ungverska liðinu Veszprém. Ólafur Gústafsson og félagar í Flensburg fá aftur á móti að glíma við stórlið Barcelona.

Úrslitahelgin fer venju samkvæmt fram í Köln. Undanúrslitin fara fram 31. maí en úrslitaleikurinn 1. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×