Handbolti

Barcelona áfram á útivallarmörkum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Victor Tomas og félagar í Barcelona eru komnir í undanúrslit Meistaradeildarinnar.
Victor Tomas og félagar í Barcelona eru komnir í undanúrslit Meistaradeildarinnar. Vísir/Getty
Barcelona komst áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu i handbolta eftir sjö marka sigur, 31-24, á Rhein-Neckar Löwen í seinni leik liðanna í átta liða úrslitunum keppninnar í kvöld.

Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar unnu fyrri leikinn í Mannheim 38-31 og því var ljóst að Börsungar ættu erfitt verkefni fyrir höndum í kvöld.

Staðan í hálfleik var 15-11, Barcelona í vil, og þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum var enn sami munur á liðunum. Börsungar áttu hins vegar sterkan endasprett og unnu að lokum 31-24.

Viðureigninni lyktaði því samtals 62-62, en Barcelona fór áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.


Tengdar fréttir

Flensburg í undanúrslitin

Þýska liðið Flensburg er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta, þrátt fyrir 27-25 tap gegn Vardar Skopje í Makedóníu í dag.

Veszprém sló Paris SG út

Franska liðið Paris SG tapaði í dag á útivelli fyrir ungverska liðinu Veszprém, 31-26, í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×