Handbolti

Veszprém sló Paris SG út

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Róbert Gunnarsson og félagar í Paris SG eru úr leik í Meistaradeild Evrópu.
Róbert Gunnarsson og félagar í Paris SG eru úr leik í Meistaradeild Evrópu. Vísir/Getty
Franska liðið Paris SG tapaði í dag á útivelli fyrir ungverska liðinu Veszprém, 31-26, í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Ungverjarnir unnu einnig fyrri leikinn, 28-26, og viðureignina samtals 59-52.

Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði eitt mark fyrir Parísarliðið, en Róbert Gunnarsson komst ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×