Guif og Kristianstad töpuðu bæði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2014 18:53 Ólafur Guðmundsson. Vísir/Daníel
Íslendingaliðin tvö í undanúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildar karla í handbolta, Guif og Kristianstad, urðu bæði að sætta sig við tap í leikjunum sínum í kvöld. Kristianstad tapaði með þremur mörkum á útivelli á móti Lugi HF, 26-29, en Guif steinlá með níu mörkum á útivelli á móti Alingsås, 18-27. Ólafur Guðmundsson skoraði sex mörk úr ellefu skotum (55 prósent) fyrir Kristianstad auk þess að gefa þrjár stoðsendingar en hann var markahæsti leikmaður síns liðs. Kristianstad vann fyrsta leikinn 30-23 á heimavelli og staðan í einvíginu er því 1-1. Það er flóknari staða í hinu einvíginu þar sem að fyrsti leikur undanúrslitaeinvígis Guif og Alingsås var dæmdur ógildur en hann vann Guif eftir tvær framlengingar. Leikurinn í kvöld var því í raun leikur eitt í einvíginu þótt að Guif sé með heimavallarrrétt í einvíginu. Alingsås kærði fyrsta leikinn þar sem að Guif tryggði sér framlengingu þar sem að klukkan fór ekki í gang á réttum tíma. Alingsås vann öruggan sigur á Kristjáni Andréssyni og lærisveinum hans í Guif í kvöld. Aron Rafn Eðvarðsson var þó einn besti maður Guif-liðsins en hann varði 12 af 32 skotum sem komu á hann þar á meðal eitt vítakast. Heimir Óli Heimisson skoraði eitt mark fyrir Guif.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Sjá meira