Jóhann Gunnar samdi við nýliðana í Mosfellsbæ Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. maí 2014 09:20 Jóhann Gunnar Einarsson skorar á móti Haukum í lokaúrslitunum 2013. Vísir/Getty
Jóhann Gunnar Einarsson, stórskyttan úr Fram, hefur ákveðið að draga skóna fram úr hillunni en hann spilaði ekkert á þessu tímabili eftir að verða Íslandsmeistari með Fram síðasta vor. Hann er genginn í raðir nýliða Aftureldingar og semur við liðið til eins árs en þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir nýliðana en Jóhann Gunnar var frábær á síðustu leiktíð þegar Fram varð Íslandsmeistari. Hann skoraði að meðaltali 5,3 mörk í leik í deildinni og var svo kjörinn besti leikmaður Olís-deildarinnar. „Ég var nú búinn að heyra í nokkrum félögum, en á endanum fannst mér Afturelding mest spennandi ... Mér fannst áskorun að fara í Mosfellsbæinn, í lið sem er nýtt í úrvalsdeildinni, með nýjan þjálfara og mikinn efnivið,“ segir Jóhann Gunnar við Morgunblaðið. Afturelding féll úr úrvalsdeildinni síðastliðið vor en vann 1. deildina á þessari leiktíð og leikur á ný á meðal þeirra bestu næsta vetur. Liðið mætir einnig til leiks með nýjan þjálfara en Einar Andri Einarsson, fráfarandi þjálfari FH, tekur við Mosfellingum.
Olís-deild karla Tengdar fréttir Einar Andri tekur við Aftureldingu Einar Andri Einarsson, þjálfari FH, tekur við liði Aftureldingar frá og með næsta keppnistímabili. 25. apríl 2014 08:14 Afturelding næsta stórveldi í handboltanum? | Myndband Afturelding úr Mosfellsbæ tryggði sér á dögunum sæti í Olís-deild karla í handbolta á ný en með liðinu leika margir af efnilegustu leikmönnum landsins. Þar ætla menn að byggja til framtíðar. 27. apríl 2014 20:15 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Rakel Dögg: Lokuðum vel varnarlega og Alfa skildi liðin að sóknarlega Sjá meira
Einar Andri tekur við Aftureldingu Einar Andri Einarsson, þjálfari FH, tekur við liði Aftureldingar frá og með næsta keppnistímabili. 25. apríl 2014 08:14
Afturelding næsta stórveldi í handboltanum? | Myndband Afturelding úr Mosfellsbæ tryggði sér á dögunum sæti í Olís-deild karla í handbolta á ný en með liðinu leika margir af efnilegustu leikmönnum landsins. Þar ætla menn að byggja til framtíðar. 27. apríl 2014 20:15