Handbolti

Arnór skoraði sex mörk í sigri Bergischer

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnór átti flottan leik fyrir Bergischer.
Arnór átti flottan leik fyrir Bergischer. Vísir/Daníel
Bergischer HC, liðs BjörgvinsPálsGústavssonar og ArnórsÞórsGunnarssonar, vann stórsigur, 34-22, á TV Emsdetten í þýska handboltanum í dag.

Bergischer náði undirtökunum um miðjan fyrri hálfleik og leiddi að honum loknum með fjórum mörkum, 18-14. Í seinni hálfleik dró enn í sundur með liðunum og þegar uppi var staðið var munurinn tólf mörk, 34-22.

Arnór skoraði sex mörk fyrir Bergischer og annar Akureyringur, Oddur Gretarsson, skoraði þrjú mörk fyrir Emsdetten. Ernir Hrafn Arnarsson skoraði eitt mark fyrir Emsdetten sem leikur í næstefstu deild að ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×