Handbolti

Dagur og félagar komust ekki í úrslit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dagur Sigurðsson og félagar komust ekki í úrslit EHF-bikarsins.
Dagur Sigurðsson og félagar komust ekki í úrslit EHF-bikarsins. Vísir/Getty
Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Füsche Berlin biðu lægri hlut fyrir ungverska liðinu Pick Szeged í undanúrslitum EHF-bikarsins í handbolta, en leikið var í Berlín í dag. Lokatölur urðu 22-24, en staðan í hálfleik var 9-13, Ungverjunum í vil.

Zsolt Balogh var markahæstur í liði Pick Szeged með sex mörk, en þeir Ferenc Ilyés og Svíinn Jonas Larholm komu næstir með fimm mörk hvor. Bartlomiej Jaszka og Mattias Zachrisson skoruðu báðir sex mörk fyrir Berlínarrefina.

Seinna í dag mætast svo rúmenska liðið Constanta og Montpellier í seinni undanúrslitaleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×