Handbolti

Aron getur spilað um helgina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Þýskir fjölmiðlar greina frá því að meiðsli Arons Pálmarssonar séu ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu.

Aron meiddist í leik Kiel gegn Flensburg um helgina og var óttast að um slæm ökklameiðsli væri að ræða. Ómskoðun hefur hins vegar leitt í ljós að öll liðbönd eru heil og getur Aron því spilað á ný um helgina.

Kiel mætir Lübbecke um helgina en liðið er í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með jafn mörg stig og topplið Rhein-Neckar Löwen. Síðarnefnda liðið er þó með betra markahlutfall.


Tengdar fréttir

Ljónin hans Guðmundar á toppinn með stórsigri

Rhein-Neckar Löwen vann 22 marka sigur á Eisenach 41-19 í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Ljónin hans Guðmundar Guðmundssonar eru þar með kominn á topp deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×