Handbolti

Ólafur markahæstur í tapi á heimavelli

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Fimm mörk Ólafs dugðu ekki til
Fimm mörk Ólafs dugðu ekki til vísir/vilhelm
Kristianstad tapaði á heimavelli 24-23 fyrir Lugi í þriðja leik liðanna í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildinnar í handbolta. Lugi var þremur mörkum yfir í hálfleik 12-9.

Leikurinn var gríðarlega spennandi en Kristianstad náði ekki að skora síðustu fimm mínútur leiksins á meðan Lugi náði að skora eitt mark og það reyndist sigurmarkið þegar rétt rúmlega þrjár mínútur voru til leiksloka.

Ólafur Guðmundsson var markahæstur í liði Kristianstad ásamt Markus Olsson með fimm mörk.

Lugi leiðir einvígið 2-1 og þarf einn sigur í viðbót til að komast í úrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×