Handbolti

Ramune fer til Frakklands

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Stefán
Landsliðskonan Ramune Pekarskyte mun í sumar ganga í raðir franska úrvalsdeildarfélagsins Le Havre.

Morgunblaðið greinir frá þessu í dag en hún hefur undanfarið ár leikið með SönderjyskE í Danmörku.

„Ég er ekki lengur 21 árs og því skrifaði ég undir eins árs samning með möguleika á að bæta öðru ári við ef vel gengur,“ sagði Ramune.

Hún lék áður með Levanger í noregi og Haukum hér á landi. Hún er fædd í Litháen en fékk íslenskan ríkisborgararétt árið 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×