Handbolti

Balic verður áfram hjá Wetzlar

Balic í landsleik.
Balic í landsleik. vísir/getty
Það vakti nokkra athygli þegar hinn öflugi Króati, Ivano Balic, gekk í raðir þýska félagsins Wetzlar fyrir um ári síðan.

Honum líkar vistin mjög vel og hefur því ákveðið að vera þar eitt ár í viðbót.

"Þetta var eitt besta ár ferilsins og ég vil líka spila eitt ár í viðbót. Þetta er gott félag og mikil fjölskyldustemning hérna," sagði Balic.

Þessi 35 ára gamli fyrrum besti leikmaður heims er meiddur og hefur ekki spilað síðan í mars. Hann segist þó hafa heilsu til að spila eitt ár í viðbót. Svo fara skórnir væntanlega upp í hillu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×