Handbolti

Ásgeir og Róbert bikarmeistarar í Frakklandi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Luc Abalo skoraði sex mörk fyrir Paris SG í bikarúrslitaleiknum í dag.
Luc Abalo skoraði sex mörk fyrir Paris SG í bikarúrslitaleiknum í dag. Vísir/AFP
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Róbert Gunnarsson urðu í dag bikarmeistarar með Paris SG eftir fjögurra marka sigur, 31-27, á Chambéry í úrslitaleik. Staðan í hálfleik var 15-12, Paris í vil.

Igor Vori, Luc Abalo og Samuel Honrubia voru markahæstir í liði Paris með sex mörk hver, en danska stórskyttan Mikkel Hansen kom næstur með fimm mörk.

Ásgeir Örn skoraði tvö mörk úr þremur skotum, en Róbert komst ekki á blað.

Alix Nyokas skoraði átta mörk fyrir Chambéry og Damir Bicanic fimm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×