Fótbolti

Birkir: Ekki sáttur við hvað ég spilaði lítið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Birkir Bjarnason slær á létta strengi með Guðlaugi Victori Pálssyni á æfingu landsliðsins í Þorlákshöfn.
Birkir Bjarnason slær á létta strengi með Guðlaugi Victori Pálssyni á æfingu landsliðsins í Þorlákshöfn. Vísir/Daníel
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Eistlandi í vináttulandsleik á Laugardalsvelli annað kvöld klukkan 19.15. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD en þetta er síðasti æfingaleikur liðsins áður en undankeppni EM 2016 hefst í haust.

Strákanir gerðu jafntefli við Austurríki í síðustu viku þrátt fyrir að spila ekkert rosalega vel. Birkir Bjarnason, miðjumaður Íslands, var ánægður með úrslitin í Innsbruck.

„Þetta var fínt. Við spiluðum ekki góðan leik og vorum heppnir að ná jafntefli en svona er þetta. Við getum ekki alltaf verið 100 prósent. Það að ná úrslitum í svona leik sýnir vissan styrkleika,“ sagði Birkir við Vísi fyrir æfingu landsliðsins í Þorlákshöfn í dag.

Þar sem FIFA hefur afnumið alþjóðlegu leikdagana í ágúst er leikurinn á morgun sá síðasti sem Ísland spilar áður en tekið verður á móti Tyrklandi í undankeppni EM í Dalnum í haust.

„Það er svolítið sérstakt en svona er þetta. Við fáum ekki allt sem við viljum upp í hendurnar. Við erum samt búnir að spila svo lengi saman að þetta á ekki að breyta neinu,“ sagði Birkir en hvernig líst honum annars á þennan feikisterka riðil með Hollandi, Tyrklandi og Tékklandi?

„Þetta er ekkert einfaldur riðill,“ sagði hann og glotti. „Við höfum samt sýnt það, að við erum með gott lið og eigum að eiga fínan möguleika á að komast áfram.“

Birkir færði sig um set í janúar og gekk í raðir Sampdora frá Pescara á Ítalíu. Þar spilaði hann 14 leiki í heildina í ítölsku A-deildinni en kom sex sinnum inn á sem varamaður og skoraði ekki deildarmark.

„Ég var ekki alveg sáttur með hvað ég spilaði lítið,“ sagði Birkir við Vísi en stendur til að finna sér nýtt lið í sumar?

„Ég á þrjú ár eftir af samningnum hjá Sampdoria þannig ég verð bara að sjá til hvað gerist og hvað þeir segja. Það fer bara eftir því hvað þeir vilja. Núna klára ég bara þennan leik, fer svo í frí og bíð eftir að heyra eitthvað. Ég er alveg rólegur,“ sagði Birkir Bjarnason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×