Handbolti

Aron bestur í Meistaradeild Evrópu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron í leik með Kiel.
Aron í leik með Kiel. Vísir/Getty
Aron Pálmarsson var í dag valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar í Meistaradeild Evrópu en það var kunngjört eftir úrslitaleikinn í dag.

Aron var markahæstur í liði Kiel þegar liðið tapaði fyrir Flensburg í úrslitaleiknum, 30-28. Hann skoraði sex mörk og spilaði nánast allan leikinn.

Aron tók við viðurkenningu inni sem var sjálfsagt sárabót eftir að hafa misst af Evrópumeistaratitlinum.

Þetta er frábær viðurkenning fyrir Aron sem er sagður á leið frá Kiel en hann hefur verið orðaður við Barcelona, PSG og Veszprem.


Tengdar fréttir

Magnaður sigur Flensburg í Meistaradeildinni

Enn og aftur varð Guðjón Valur Sigurðsson af Evrópumeistaratitlinum en Flensburg vann í dag Meistaradeild Evrópu eftir sigur á Kiel í úrslitaleik, 30-28.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×