Ekki bara smálaxar í Leirvogsá Karl Lúðvíksson skrifar 7. júlí 2014 14:35 Rögnvaldur með laxinn sem mældist 96 sm langur
Leirvogsá hefur ekki verið þekkt sem nein stórlaxaá frekar en aðrar ár í nánasta umhverfi Reykjavíkur en í morgun kom lax á land sem afsannar þessa reglu. Rögnvaldur Örn Jónsson einn af stjórnarmönnum SVFR landaði 96 sm hæng úr Ketilshyl í morgun og eins og sést á myndinni er þetta glæsilegur lax og líklega einn af þeim stærstu úr ánni um árabil. Rögnvaldur hefur áður brotið blað í sögu áa sem eru ekki þekktar fyrir neina stórlaxa þegar hann landaði 20 punda laxi af Norðurá II fyrir fáum árum en fiskur af þeirri stærð hafði veiðst á því svæði líklega áratugum saman. Veiðimenn sem eiga daga á næstunni í Leirvogsá geta líklega reynt að setja í þetta ferlíki aftur, þar sem honum var sleppt aftur í ánna, og aðra væna laxa sem hafa verið að sýna sig í ánni síðustu daga. Eins er líklega að áin fari á flug þegar straumur verður vaxandi en þá má gera ráð fyrir því að smálaxagöngurnar fari að skila sér af afli í ánna. Við óskum Rögnvaldi til hamingju með fallegan feng.
Stangveiði Mest lesið Arnarvatnsheiðin kemur vel undan vetri Veiði Veiddu karlana undir borðið Veiði 14.305 veiddir fiskar í Veiðivötnum Veiði Hlaupvídd 20 líka hentug á rjúpu Veiði Steinsmýrarvötn hafa verið að gefa vel Veiði Kastkeppni á skemmtileikum Veiði Elliðaárnar yfir 600 laxa Veiði Veiðin - Þriðji þáttur með Ásgeiri Heiðar Veiði Allt um veiðihnúta Veiði Þegar litlu flugurnar gefa best Veiði