Handbolti

Kiel tapaði óvænt gegn Balingen | Aron sá rautt

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Lærisveinar Alfreðs hafa tapað tveimur af fyrstu fjórum leikjum tímabilsins
Lærisveinar Alfreðs hafa tapað tveimur af fyrstu fjórum leikjum tímabilsins Vísir/Getty
Þýsku meistararnir í Kiel töpuðu nokkuð óvænt fyrir Balingen á útivelli í kvöld 21-22. Aron Pálmarsson fékk rautt spjald í leiknum þegar tuttugur mínútur voru til leiksloka.

Aron átti í erfiðleikum í dag en hann komst ekki á blað hjá Kiel sem lenti frá upphafi í erfiðleikum. Kiel var 13-10 yfir í hálfleik en heimamenn náðu að snúa taflinu við í seinni hálfleik og unnu að lokum nauman 22-21 sigur.

Í fyrri leik kvöldsins vann Flensburg nauman sigur á Lübbecke á útivelli. Flensburg hafði undirtökin í leiknum en gekk illa að hrista Lübbecke frá sér fyrr en undir lokin. Lauk leinkum með 31-26 sigri Flensburg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×