Hentu hvíta sykrinum út og notaðu stevíu í staðinn Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar 3. september 2014 09:00 Vísir/Getty
Við á Heilsuvísi viljum stuðla að bættri heilsu og betra líferni og skorum á þig að taka þátt í Sykurlausum september. Við munum fjalla um kosti þess að sleppa sykri og hvað getur komið í staðinn þegar löngunin í sætindi hellist yfir. Stevía er eitt af því sem hægt er að nota í stað hefðbundins sykurs og er tölvuvert hollari kostur. Stevía er náttúrulegt sætuefni og er unnið úr jurt sem kemur upprunalega frá Suður-Ameríku. Jurtin er nú ræktuð um víða veröld og verður sífellt vinsælla sætuefni í stað sykurs. Stevía inniheldur engar hitaeiningar og það besta við hana er það að hún hefur ekki slæm áhrif á blóðsykurinn eins og hvítur sykur gerir. Hún hentar því vel fyrir sykursjúka og alla þá sem vilja sneiða hjá hefðbundnum sykri. Hægt er að skipta út sykri fyrir stevíu í mörgum uppskriftum og er hægt að nota hana bæði í bakstur og matargerð. Gott er þó að hafa í huga að stevía er mjög sæt, allt að 300 sinnum sætari en hvítur sykur og þarf því að nota mjög lítið af henni. Hægt er að fá mismunandi bragðtegundir af stevíu frá mismunandi vörumerkjum og hún fæst í flestum heilsu og matvöruverslunum. Það er um að gera að prófa sig áfram og finna þá tegund sem hentar hverjum og einum. Við viljum hvetja þig til góðra verka og drögum út heilsutengda vinninga vikulega í september. Vertu með á Facebook og Instagram og hastaggaðu #heilsuvisir #sykurlausseptember. Myndirnar geta verið af hvatningarorðum, drykkjum, sykurlausum mataruppskriftum, sætum bitum án sykurs, fyrirmyndum og öllu sem að tengist ferðalagi þínu í sykurlausum september.
Heilsa Tengdar fréttir Sykurlaus september - ertu með? Við á Heilsuvísi viljum stuðla að bættri heilsu og betra líferni og skorum á þig að taka þátt í Sykurlausum september. 2. september 2014 15:07 Sannleikurinn um sykur afhjúpaður Myndband þar sem kanadíska fréttakonan Gillian Findlay greinir frá helstu rannsóknum á afleiðingum sykurneyslu. 28. júlí 2014 11:34 Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Ný hugsun í heimi brúnkuvara Lífið samstarf
Sykurlaus september - ertu með? Við á Heilsuvísi viljum stuðla að bættri heilsu og betra líferni og skorum á þig að taka þátt í Sykurlausum september. 2. september 2014 15:07
Sannleikurinn um sykur afhjúpaður Myndband þar sem kanadíska fréttakonan Gillian Findlay greinir frá helstu rannsóknum á afleiðingum sykurneyslu. 28. júlí 2014 11:34