Handbolti

Kiel vann eins marks sigur | Aron skoraði fimm mörk

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron skoraði fimm mörk í Hvíta-Rússlandi í kvöld.
Aron skoraði fimm mörk í Hvíta-Rússlandi í kvöld. Vísir/Getty
Þýska handboltaliðið Kiel vann eins marks sigur, 25-24, á hvít-rússneska liðinu Meshkov Brest á útivelli í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Staðan var í hálfleik var jöfn, 11-11.

Aron Pálmarsson skoraði fimm mörk fyrir Kiel, en Serbinn Marko Vujin var markahæstur í liði Þýskalandsmeistaranna með sjö mörk.

Alfreð Gíslason og lærisveinar hans eru með fjögur stig eftir þrjá leiki, jafn mörg og Paris SG.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×