Handbolti

Arnór Þór með tíu í tapi | Arnór Atla með fjögur í sigri

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Arnór gat brosað í leikslok
Arnór gat brosað í leikslok vísir/vilhelm
Arnór Atlason skoraði fjögur mörk fyrir Saint Raphael sem lagi Toulouse 33-28 á heimavelli í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Saint Raphael er með 6 stig í fjórða sæti deildarinnar. Toulouse er með 4 stig eftir fjórar umferðir.

Á sama tíma lagði Göppingen Bergischer 31-27 í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Arnór Þór Gunnarsson fór á kostum í leiknum og skoraði 10 mörk. Björgvin Páll Gústavsson varði 3 skot á þeim tíma sem hann fékk í marki Bergischer.

Göppingen er í öðru sæti deildarinnar, nú með 13 stig, stigi á eftir Rhein-Neckar Löwen. Bergischer er um miðja deild með 7 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×