Körfubolti

Haukar, KR og Tindastóll með fullt hús - úrslit kvöldsins í körfunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stólarnir byrjar vel í vetur.
Stólarnir byrjar vel í vetur. Vísir/Valli
Haukar, KR og Tindastóll fögnuðu öll sínum öðrum sigri á tímabilinu í kvöld þegar þau unnu sína leiki þegar 2. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta fór af stað.

Haukar og KR unnu bæði eftir æsispennandi leiki á útivelli en Stólarnir unnu öruggan heimasigur.

KR-ingar lentu í miklu basli með ÍR-inga í Seljaskólanum en tryggðu sér sjö stiga sigur með góðum fjórða leikhluta.

Haukar voru fimm stigum undir á móti Snæfelli þegar tvær mínútur voru eftir í Hólminum en tryggðu sér sigur með því að skora tíu síðustu stig leiksins.

Tindastóll vann sannfærandi sigur á Þór í Síkinu á Sauðárkróki þar sem ungu bakverðir liðsins fengu að njóta sín.

Grindvíkingar eru líka komnir á blað í deildinni eftir 106-75 sigur á Skallagrími á heimavelli þar sem Grindvíkingar unnu lokaleikhlutann 37-18.

Úrslit og stigaskorar leikmanna í leikjum kvöldsins í Dominos-deild karla:



ÍR-KR 86-93 (20-30, 27-19, 22-17, 17-27)

ÍR: Matthías Orri Sigurðarson 29/4 fráköst/5 stoðsendingar, Christopher Gardingo 18/12 fráköst, Sveinbjörn Claessen 15/6 fráköst/5 stoðsendingar, Kristján Pétur Andrésson 8, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 8, Leifur Steinn Arnason 4, Vilhjálmur Theodór Jónsson 4/4 fráköst.

KR: Michael Craion 33/15 fráköst/3 varin skot, Brynjar Þór Björnsson 16, Hörður Helgi Hreiðarsson 12/5 fráköst, Helgi Már Magnússon 12/8 fráköst, Finnur Atli Magnússon 9, Darri Hilmarsson 8/4 fráköst, Björn Kristjánsson 3/5 stoðsendingar.



Tindastóll-Þór Þ. 110-90 (33-17, 30-23, 26-26, 21-24)

Tindastóll: Myron Dempsey 27/11 fráköst, Pétur Rúnar Birgisson 21/4 fráköst, Darrel Keith Lewis 19/5 fráköst/6 stoðsendingar, Helgi Rafn Viggósson 17/7 fráköst, Svavar Atli Birgisson 8/11 fráköst, Ingvi Rafn Ingvarsson 6/7 fráköst/11 stoðsendingar, Helgi Freyr Margeirsson 6, Finnbogi Bjarnason 4, Viðar Ágústsson 2.

Þór Þ.: Vincent Sanford 27/9 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 19, Þorsteinn Már Ragnarsson 13, Nemanja Sovic 10, Baldur Þór Ragnarsson 9, Emil Karel Einarsson 5, Oddur Ólafsson 3, Grétar Ingi Erlendsson 2, Halldór Garðar Hermannsson 2.



Grindavík-Skallagrímur 106-75 (22-18, 19-22, 28-17, 37-18)

Grindavík: Magnús Þór Gunnarsson 19, Joel Hayden Haywood 18/5 fráköst/7 stoðsendingar, Ólafur Ólafsson 18/17 fráköst, Daníel Guðni Guðmundsson 17, Oddur Rúnar Kristjánsson 16, Ómar Örn Sævarsson 8/19 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 3/5 stoðsendingar, Þorsteinn Finnbogason 3, Kristófer Breki Gylfason 2, Hilmir Kristjánsson 2.

Skallagrímur: Tracey Smith 28/13 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 19/5 fráköst, Daði Berg Grétarsson 8/4 fráköst, Arnar Smári Bjarnason 8/5 fráköst/7 stoðsendingar, Davíð Ásgeirsson 7/5 fráköst, Davíð Guðmundsson 3, Ármann Örn Vilbergsson 2.



Snæfell-Haukar 84-89 (24-20, 23-23, 16-22, 21-24)

Snæfell: Sigurður Á. Þorvaldsson 31/11 fráköst/3 varin skot, Austin Magnus Bracey 16/4 fráköst/5 stoðsendingar, William Henry Nelson 14/14 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 12, Stefán Karel Torfason 10/6 fráköst, Snjólfur Björnsson 1/6 stoðsendingar.

Haukar: Alex Francis 30/15 fráköst, Kári Jónsson 20/5 stoðsendingar, Emil Barja 18/4 fráköst/7 stoðsendingar, Haukur Óskarsson 10, Hjálmar Stefánsson 6/4 fráköst, Kristinn Marinósson 5.


Tengdar fréttir

Ungu strákarnir fóru á kostum hjá Stólunum

Nýliðar Tindastóls áttu ekki í miklum vandræðum með að vinna Þór í kvöld í fyrsta heimaleik vetrarins í Dominos-deild karla í körfubolta. Tindastóll vann leikinn með 20 stiga mun, 110-90.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×