Handbolti

Guðjón Valur markahæstur í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Enn og aftur er Guðjón Valur markahæstur.
Enn og aftur er Guðjón Valur markahæstur. Vísir/Barcelona
Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í liði Barcelona í öruggum sigri á tyrkneska liðinu Besiktas.

Lokatölur urðu tíu marka sigur spænska stórliðsins 35-25, en Guðjón Valur skoraði átta mörk og var markahæstur Börsunga. Þeir leiddu í hálfleik 19-12.

Álaborg tapaði fyrir Szeged frá Ungverjalandi 25-28, en Ólafur Gústafsson var ekki í leikmannahópi danska liðsins vegna meiðsla.

Franska stórliðið PSG vann svo sjö marka sigur á La Rioja frá Spáni, 32-25, en Róbert Gunnarsson skoraði tvö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×