Handbolti

Hörður Fannar til Aue | Byrjar vel

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hörður Fannar fyrir miðri mynd (nr. 20)|
Hörður Fannar fyrir miðri mynd (nr. 20)| Vísir/Vilhelm
Hörður Fannar Sigþórsson spilaði í gær sinn fyrsta leik fyrir EHV Aue í þýsku B-deildinni í handbolta í gær, en Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Aue, brá á það ráð að næla í Hörð Fannar.

Mikil meiðslavandræði hafa verið í varnarleik Aue undanfarin og brá Rúnar á það ráð að næla í Hörð Fannar. Það gekk upp því Aue vann leikinn 24-10 eftir að hafa verið 10-7 undir í hálfleik.

Hörður Fannar er frá Akureyri þar sem hann spilaði, síðast fyrir rúmu ári síðan. Hann sleit þó krossband í febrúar á síðasta ári, en hefur undanfarið búið í Færeyjum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×