Fótbolti

U17 ára liðið komst í milliriðil

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kolbeinn Finnsson var í byrjunarliðinu í dag.
Kolbeinn Finnsson var í byrjunarliðinu í dag. vísir/getty
Piltalandsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 17 ára og yngri gerði 1-1 jafntefli við Ítalíu í lokaleik liðsins í undankeppni EM í dag.

Máni Hilmarsson, leikmaður FCK í Danmörku, kom Íslandi yfir, en Ítalir jöfnuðu metin áður en yfir lauk. Lokatölur, 1-1.

Ítalska liðið var öruggt með sæti í milliriðli fyrir leikinn og með jafntefli komst Ísland með Ítölum í milliriðilinn, en Moldóvar og Armenar voru skildir eftir.

Milliriðlarnir fara fram á næsta ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×