Óveður á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli Samúel Karl Ólason skrifar 2. nóvember 2014 09:45 Vísir/Vilhelm
Óveður er á Kjalarnesi og mjög miklar kviður og þar er ekkert ferðaveður eins og er. Sömuleiðis er óveður undir Hafnarfjalli. Vindhviður á Kjalarnesi eru 30 til 40 metrar á sekúndu, en mun hægja fljótlega upp úr hádegi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Búast má við hríð á láglendi á Vestfjörðum í dag og ofankomu og takmörkuðu skyggni á fjallvegum á Norðurlandi. Líklegast verður frostlaust og slydda neðan 100 til 300 metra hæðar framan af degi. Á Suðurlandi eru vegir þó greiðfærir. Sömu sögu er að segja af mest öllu Vesturlandi, en hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Þá er hálka og óveður á Laxárdalsheiði og hálkublettir og óveður á Fróðárheiði og á Sunnanverðu Snæfellsnesi. Á Vestfjörðum er ófært og stórhríð á Steingrímsfjarðarheiði og Klettsáls. Hálka og stórhríð er á Gemlufallsheiði og á Hjallaháls. Snjóþekja og éljagangur er á Þröskuldum. Óveður er á Mikladal. Ófært er á Hrafnseyrarheiði en þæfingsfærð á Dynjandaheiði. Hálka og óveður er á Ennisháls. Ófært er norður í Árneshrepp á Ströndum. Hálka eða hálkublettir eru á flestum vegum á Norðurlandi. Hálka og éljagangur er á Öxnadalsheiðir og óveður er í Húnavatnssýslum. Þá er krapi og stórhríð á Þverárfjalli og krapi og éljagangur á Siglufjarðarvegi, Köldukinn og Fljótsheiði. Vegir á Austurlandi eru greiðfærir að mestu þó er hálkublettir á nokkrum fjallvegum. Hálkublettir og éljagangur er á Fjarðarheiði. Autt er með suðausturströndinni.
Veður Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Fleiri fréttir Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Sjá meira