Handbolti

Bjarki: Gerðum lítið úr HK með svona frammistöðu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bjarki Sigurðsson ekki kátur á hliðarlínunni í kvöld.
Bjarki Sigurðsson ekki kátur á hliðarlínunni í kvöld. Vísir/andri marinó
„Ég er mjög ósáttur við leik liðsins. Mjög,“ sagði Bjarki Sigurðsson, þjálfari HK, ómyrkur í máli eftir niðurlægingu HK í bikarkeppninni í kvöld. Lokatölur voru 38-25, Stjörnunni í vil, en þessi lið verma tvö neðstu sæti Olísdeildar karla.

„Þetta var engan veginn boðlegt og við þurfum að líta okkur nær núna. Þetta gengur ekki mikið lengur,“ sagði Bjarki sem viðurkennir að staða liðsins sé einkar slæm. Tvær umferðir eru eftir í deildinni þar til að hlé verður gert á tímabilinu fram yfir HM í handbolta.

„Við erum neðstir í deildinni og úr leik í bikarnum. Það hefði verið í lagi að tapa í hörkuleik í bikarnum en engan veginn boðlegt að láta slátra sér eins og við gerðum í kvöld.“

„Að sjálfsögðu verður þetta vetrarfrí kærkomið og vonandi tekst okkur að stilla saman strengi og safna vopnum. Ég þarf að skoða þetta almennilega - þetta gengur ekki svona lengur enda allt of mikið.“

HK vann síðast sigur þegar liðið mætti Aftureldingu þann 23. október. Mosfellingar voru þá á toppi deildarinnar og ekki búnir að tapa leik í fyrstu sex umferðum deildarinnar. Bjarki segir fátt í leik liðsins í dag minna á þá frammistöðu.

„Við þurfum að grafa hana upp. Þar var barátta, leikgleði og allir lögðu sig hundrða prósent fram. Núna snýst þetta meira um einstaklingana sem kemur í bakið á mönnum. Slíkt má ekki gegn Stjörnunni eða hvaða liði sem er í deildinni.“

„Við erum „underdogs“ og erum að berjast fyrir lífi okkar. HK hefur verið þekkt fyrir þennan baráttuvilja síðustu árin og ég lýsi eftir honum. Það er kannski okkar þjálfaranna að draga hann fram. Vonandi tekst það.“

Bjarki segist ætla að taka slaginn áfram sem þjálfari HK, fái hann áfram traust stjórnar HK til þess. „Við þurfum þó að fara vel og vandlega yfir málin. Það er ljóst að við þurfum að styrkja leikmannahópinn og einhvern veginn að peppa þetta betur upp.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×