Körfubolti

Tyson-Thomas með stórleik í sigri Keflavíkur

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tyson-Thomas á ferðinni að Hlíðarenda í kvöld.
Tyson-Thomas á ferðinni að Hlíðarenda í kvöld. vísir/stefán
Keflavík jafnaði Snæfell að stigum á toppi Dominos-deildar kvenna í körfubolta í kvöld, en liðið vann Val með tólf stiga mun, 81-69, í Vodafone-höllinni.

Carmen Tyson-Thomas fór á kostum fyrir Keflavík og skoraði 41 stig, tók 14 fráköst, gaf 8 stoðsendingar og stal 7 boltum.

Ingunn Embla Kristínardóttir bætti við 15 stigum fyrir gestina, en hjá Val var Guðbjörg Sverrisdóttir atkvæðamest með 21 stig, 11 fráköst og 9 stoðsendingar. Grátlega nálægt glæsilegri þrennu.

Keflavík með 20 stig líkt og Snæfell sem spilar á morgun, en Haukar eru með 18 stig eftir sigur á nýluðum Breiðabliks í kvöld.

LeLe Hardy var með enn eina tvennuna, en hún skoraði 24 stig og tók 21 frákast og Guðrún Ósk Ámundadóttir bætti við 15 stigum.

Hjá gestunum var Arielle Wideman atkvæðamest með 20 stig og 10 fráköst, en Kristbjörg Pálsdóttir skoraði 12 stig. Breiðablik á botninum með tvö stig líkt og KR.

Haukar-Breiðablik 75-60 (24-11, 9-20, 24-14, 18-15)

Haukar: LeLe Hardy 24/21 fráköst/6 stoðsendingar/7 stolnir, Guðrún Ósk Ámundadóttir 15/5 fráköst, Auður Íris Ólafsdóttir 8/6 stoðsendingar/5 stolnir, Sólrún Inga Gísladóttir 8, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 4/9 fráköst/3 varin skot, Dýrfinna Arnardóttir 4, María Lind Sigurðardóttir 4, Inga Rún Svansdóttir 4, Dagbjört Samúelsdóttir 2, Þóra Kristín Jónsdóttir 2.

Breiðablik: Arielle Wideman 20/10 fráköst, Kristbjörg Pálsdóttir 12, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 8, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 6/8 fráköst, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 4, Isabella Ósk Sigurðardóttir 3, Berglind Karen Ingvarsdóttir 3, Ingunn Erla Kristjánsdóttir 2, Aníta Rún Árnadóttir 2/4 fráköst.

Valur-Keflavík 69-81 (16-16, 12-14, 20-19, 21-32)

Valur: Guðbjörg Sverrisdóttir 21/11 fráköst/9 stoðsendingar, Kristrún Sigurjónsdóttir 16/5 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 12/13 fráköst/3 varin skot, Fanney Lind Guðmundsdóttir 8/5 fráköst, Margrét Ósk Einarsdóttir 8, Ragnheiður Benónísdóttir 4/6 fráköst, Sara Diljá Sigurðardóttir 0/4 varin skot.

Keflavík: Carmen Tyson-Thomas 41/14 fráköst/8 stoðsendingar/7 stolnir, Ingunn Embla Kristínardóttir 15, Lovísa Falsdóttir 9/7 fráköst, Marín Laufey Davíðsdóttir 6/5 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 4/4 fráköst, Bríet Sif Hinriksdóttir 3, Sandra Lind Þrastardóttir 2/4 fráköst/5 varin skot, Sara Rún Hinriksdóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×