Þungavigtarhljómsveit með JT Gunnar Leó Pálsson skrifar 20. mars 2014 19:30 Hamagangur á bakvið Justin Timberlake Vísir/Getty
Eins og alþjóð veit er ein skærasta poppstjarna samtímans, Justin Timberlake, á leið til landsins. Gott og vel með það, en ég held almennt að fólk viti ekki hversu stórkostlegir listamenn koma með honum, því að við vitum að á bak við svona yfirgengilegt „show“ stendur ekki bara einn maður. Í fylgd með Justin Timberlake er fagfólk á öllum sviðum og þeir sem eiga miða á þennan viðburð verða vitni að einum merkilegasta menningarviðburði sögunnar hér á landi. Á bak við Justin Timberlake er fyrst og fremst stórhljómsveit skipuð vel völdum hljóðfæraleikurum sem eru allir vel kunnir í bransanum og hafa komið fram með hinum ýmsu listamönnum í gegnum tíðina. Fréttablaðið grennslaðist fyrir um feril fjögurra meðlima hljómsveitar Justins sem eru engir nýgræðingar í tónlistarbransanum. Fyrir utan þá skipa sveitina fleiri snillingar, blásarasveit og frábærir bakraddarsöngvarar. Þar fyrir utan gera færir dansara tónleikana að alvöru „showi“. Tónleikarnir fara fram 24. ágúst í Kórnum og þar lýkur hluta af tónleikaferðalagi Justins. Justin fær þá smá frí en heldur svo til vinnu á ný í september. Næstu bókuðu tónleikar eru í Melbourne í Ástralíu 18. september.Adam Blackstone er maðurinn á bak við Justin Timberlake en hann er hljómsveitar- og tónlistarstjóri Justins.Vísir/GettyAdam Blackstone er maðurinn á bak við Justin Timberlake en hann er hljómsveitar- og tónlistarstjóri Justins. Hann hefur spilað á hljóðfæri frá blautu barnsbeini. Hann var upphaflega píanóleikari og trommuleikari, en sex ára gamall var hann farinn að spila með hljómsveitum í kirkjunni sinni. Hann byrjaði þó ekki að spila á bassa, sem er hans aðalhljóðfæri í dag, fyrr en hann var kominn í framhaldsskóla. Í dag er hann einn uppteknasti og virtasti bassaleikarinn í popp- og r&b-senunni í heiminum. Blackstone hafði til að mynda í nægu að snúast á síðustu Grammy-verðlaunahátíð þegar hann kom ekki bara fram með Justin Timberlake og stýrði hljómsveit hans, heldur spilaði hann einnig með Rihönnu og Aliciu Keys og stýrði hljómsveitum þeirra. Hann hefur til dæmis komið fram með, spilað inn á plötur og verið hljómsveitar- og tónlistarstjóri hjá listamönnum á borð við Justin Timberlake, Jay Z, Rihanna, Eminem, Chris Brown, Nicki Minaj, The Roots, Janet Jackson, Kanye West, Drake, LL Cool J og Maroon 5.Brian Frasier-Moore er trommuleikarinn í hljómsveit Justins Timberlake.Brian Frasier-Moore er trommuleikarinn í hljómsveit Justins Timberlake. Hann hefur spilað á trommur frá því hann var fimm ára gamall. Hann er einn eftirsóttasti trommuleikari heims í popp- og r&b-geiranum og byrjaði að túra með stórum nöfnum ungur að aldri. Hann var í mörg ár trommari söngkonunnar Aaliyah, sem lést langt um aldur fram. Hann hefur komið fram með og spilað inn á plötur með listamönnum á borð við Justin Timberlake, Janet Jackson, Aaliyah, Christina Aguilera, Usher, Madonna og mörgum fleirumMike Scott er annar af gítarleikurum Justins Timberlake. Hann er svokallaður sólógítarleikari sveitarinnar og fer á kostum.Mike Scott er annar af gítarleikurum Justins Timberlake. Hann er svokallaður sólógítarleikari sveitarinnar og fer á kostum. Hann hefur frá þrettán ára aldri leikið á gítar úti um allt og með öllum. Hann hefur komið fram með og spilað inn á plötur með listamönnum á borð við Justin Timberlake, m.a. á FutureSex/LoveShow tónleikunum árið 2007, Prince, Lenny Kravitz, Jimmy Jam & Terry Lewis, Timbaland, Janet Jackson, Mariah Carey, New Edition, Mary J. Blige, Lionel Richie, Rihanna, Leona Lewis, Maroon 5, Jermaine Jackson og Alicia Keys.Elliot Ives er hinn gítarleikarinn í hljómsveit Justins Timberlake.Elliot Ives er hinn gítarleikarinn í hljómsveit Justins Timberlake. Hann er, eins og Justin, frá Memphis. Hann byrjaði ekki að spila á gítar fyrr en hann var 17 ára gamall. Hann var einn af þeim sem pródúseruðu 20/20 experience-plötur Justins sem komu út í fyrra. Hann fékk djobbið í gegnum hljómsveitina sína FreeSol sem Justin uppgötvaði árið 2006. Elliott hefur einnig unnið með Timbaland, Beyonce, Keri Hilson, Jay-Z og mörgum fleirum.nordicphotos/getty
Tónlist Mest lesið Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Tónlist Magnaðar myndir af lengstu á landsins Lífið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið Speak No Evil: Pabbi er ekki með fulle fem Gagnrýni „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Kristófer Helga í veikindaleyfi Lífið Seldu Kolbeini Sigþórs og keyptu í miðbænum Lífið Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal Tónlist Ebba Katrín og Oddur keyptu hús í miðbænum Lífið Segir Murphy gera lítið úr kynferðisofbeldi Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar „Ég á mjög auðvelt með að standa með þessu öllu saman“ Pétur Jökull er Pj Glaze Sjá meira